Jón Gnarr heldur áfram að stríða fylgjendum sínum.
Í gær sagði Mannlíf frá dularfullri færslu Jóns Gnarr, leikara, grínista og fyrrverandi borgarstjóra Reykjavíkur. Í fæslunni birti hann ljósmynd af sér í þungum þönkum en þó brosandi, og skrifaði við hana: „Íhuga næstu skref“. Ekki sagði hann hvaða skref hann væri að íhuga en í byrjun árs sagði Mannlíf frá því að Jón útilokaði ekki forsetaframboð.
Í dag birti Jón svo aðra dularfulla ljósmynd en í þetta sinn var það á Instagram-reikningi hans. Þar sést hann með gömlum félögum sínum úr Besta flokknum sem bauð sig fram til sveitartjórnarkosninganna árið 2014 og starfaði í eitt kjörtímabil en lagði svo upp laupana. Við ljósmyndina skrifaði Jón: „Allt að gerast í góða veðrinu!“
Einn fylgjandi hans skrifaði eftirfarandi athugasemd: „Endurkoma Besta Flokksins?“
Annar spurði, eðlilega: „Ertu að stríða okkur?“
Mannlíf spyr líka, ertu að stríða okkur?