Jón Gnarr er ekki ánægður með nýliðið vorið. Segist hann aldrei hafa séð plönturnar hans jafn illa farnar af kulda.
Í nýlegri Facebook-færslu tjáir sig grínistinn og fyrrum borgarstjórinn Jón Gnarr, um liðið vor sem hann segir það kaldasta sem hann muni eftir. Segist hann vera mikill vormaður en að nú hafi hann aldrei séð plönturnar sínar jafn illa farnar.
„ég bara man ekki eftir jafn köldu og ömurlegu vori. nú er ég mikill vormaður og yfirleitt byrjaður að vappa í kringum gróðrarstöðvar seinni partinn í apríl en hefur ekki dottið það í hug núna. hef heldur aldrei séð plönturnar mínar jafn illa farnar af kulda. Túlípanarnir eru ekki svipur hjá sjón og elsku illirinn minn er illa farinn.
Hér má sjá myndir úr garði Jóns: