- Auglýsing -
Jón Gnarr segist ekki sjá mikinn mun á Vinstri grænum og Framsókn, í nýlegri færslu á Twitter.
Grínistinn, rithöfundurinn og útvarpsmaðurinn Jón Gnarr birti hlekk á frétt af úrsögn varaþingmannsins Daníels E. Arnarssonar úr Vinstri grænum. Segir Gnarr í færslunni að hann hafi aldrei séð mikinn mun á VG og Framsókn.
„ég hef aldrei séð stóran mun á VG og Framsókn, VG hefur sömu stefnu i mennta- og menningarmálum og Framsókn í landbúnaði; einangrun, íhaldssemi og þjóðernishyggja og jafnvel belgingur. skil ekki hvernig þetta virðist sífellt koma fólki á óvart.“