Raunveruleikastjarnan Kourtney Kardashian og unnusti hennar Travis Barker létu sjá sig á Grammys-verðlaunahátíðinni síðastliðna helgi. Parið sem er yfir sig ástfangið fór í sleik á rauða dreglinm og vöktu mikla athygli. Hafa þau verið töluvert í sviðsljósinu undanfarið og sögusagnir um það að Kourtney sé ólétt eru orðnar háværar.
Parið hefur tjáð sig opinberlega um löngun sína í að eignast barn saman en fyrir á Kourtney þrjú börn með fyrrverandi kærasta sínum, Scott Disick.
Aðdáendur stjörnunnar hafa nú rýnt meira en nokkru sinni fyrr í klæðnað og útlit hennar og vilja margir meina að það sé farið að sjást að hún beri barn undir belti.
Parið var glæsilegt að vana – dæmi hver fyrir sig hvort fjórða barn Kourtney sé á leiðinni.