Vilhjálmur, prinsinn af Wales, fagnar fertugasta og fyrsta afmælisdegi sínum í dag. Af því tilefni sendi faðir hans, Karl III Bretakonungur kveðju með fallegri ljósmynd af þeim feðgum.
Í tilefni afmælis Vilhjálms, birti Instagram-reikningur bresku konungsfjölskyldunnar sjaldgæfa ljósmynd af þeim feðgum sem tekin var við æfingu á krýningu Karls III, í maí. Á ljósmyndinni sjást feðgarnir brosa á meðan Vilhjálmur festir hina konunglegu skykkju á föður sinn.
„Þessi ljósmynd er ekki konungleg… Þessi ljósmynd sýnir ást milli sonar og föður hans…“ skrifaði einhver í athugasemd við myndina.
„Ég, Vilhjálmur, prinsinn af Wales, lofa hollustu mína til yðar og trú og sannleika mun ég bera yður, eins og fylgjandi yðar lífs og lima. Svo hjálpaðu mér Guð,“ sagði hann.
Erfinginn sat nýlega fyrir á tveimur yndislegum ljósmyndum með börnum sínum þremur, þeim Georgi prins, 9 ára, Karlottu prinsessu, 8 ára og Lúðvíki prins, 5 ára, í tilefni af feðradeginum.
Fréttin er unnin upp úr frétt ET.