- Auglýsing -
Vilhjálmur prins og eiginkona hans, Kata Hertogaynjan af Cambridge, heimsóttu ELEVATE í vikunni. Um var að ræða skapandi miðstöð fyrir ungt fólk í Brixton.
Kata tók þátt í því sem fór fram í miðstöðinni og prófaði meðal annars að nota svokallaða DSLR myndavél á meðan kvikmyndatöku og ljósmyndavinnu stóð. Hertogaynjan virtist hæst ánægð með græjuna á öxlunum og myndaði allt sem fram fór í herberginu líkt og sjá má í myndbandinu hér að neðan.