Fyrirsætan, raunveruleikastjarnan og meðlimur í hinni athyglisvænu Kardashian fjölskylu, Kendall Jenner braut internetið í gær. Hvernig gerði hún það? Með því að birta ljósmynd af sér nakinni á Instagram.
Þegar þessi stórfrétt er rituð, hafa 8,9 milljónir líkað við myndina og fjalla erlendir miðlar einnig um hana.
Með þessu fetar fyrirsætan snotra í fótspor stóru systur sinnar, Kim sem mölbraut internetið þegar hún sat fyrir í evuklæðunum fyrir tímaritið Paper fyrir nokkrum árum. Enn er verið að líma saman síðustu bútana úr internetinu.
Myndina birti Jenner ásamt nokkrum öðrum ljósmyndum sem hún sat fyrir á fyrir iD. Aðdáendur hennar eru hreint út sagt algjörlega að missa það og hrósa henni í hástert fyrir þessar fallegu myndir.
Hér fyrir neðan má sjá herlegheitin:
View this post on Instagram