Kristján Einar Sigurbjörnsson eða Kleini eins og hann kallar sig, segist ekki sofa né borða vegna vanlíðan en hann kom nýverið til Íslands eftir að hafa setið í fangelsi á Malaga á Spáni í átta mánuði.
Kleini svaraði aðsendum spurningum á Instagram í kvöld og birti í „story“ hjá sér. Þar gæti ýmissa grasa en þó nokkrar stúlkur virðast meðal annars hafa áhuga á honum og spyrja spurninga á borð við „Á maður sjens í þig?“ sem Kleini glottir yfir en svarar ekki.
Einn spurði hann hvernig honum liði og svaraði hann því til að hann svæfi hvorki né borðaði og gréti sig í svefn á hverju kvöldi.
Er hann var spurður út í ástæðuna fyrir því að hann hefði setið inni á Malaga svaraði Kleini: „Ég var settur inn fyrir slagsmál en ég sat inni í 8 mánuði fyrir að vera útlendingur.“
Mannlíf hefur heimildir fyrir því að Kleini hafi verið handtekinn vegna þriggja alvarlegra líkamsárása.
Sjá einnig: Kristján Einar handtekinn fyrir þrjár alvarlegar líkamsárásir – Situr í fangelsi í Malaga
Hér fyrir neðan má sjá Kleina svara tveimur spurningum: