- Auglýsing -
Samkvæmt könnun MMR var áramótaskaupið 2020 það besta sem sést hefur yfir síðasta áratug að mati landsmanna.
85 prósent þátttakenda í könnun MMR sögðu að þeim hefði þótt skaupið gott og 64 prósent töldu það mjög gott. 21 prósent sögðu það frekar gott, 9 prósent bæði og, 3 prósent frekar slakt og 3 prósent mjög slakt.
Þetta eru bestu tölur sem skaupið hefur fengið í fjölda ára.
Nú er áramótaskaupinu 2021 nýlokið og við viljum gjarnan heyra skoðun ykkar, kæru lesendur. Hvernig fannst ykkur skaupið í ár?