- Auglýsing -
Söngdívan Bríet Ísis Elfar fékk óvæntan koss á kinn í strætisvagni erlendis en hún birti skemmtilegt myndskeið af kossinum í story á Instagram.
Bríet Ísis hætti í lok sumar með Rubin Pollock, gítarleikara Kaleo, eftir þriggja ára samband en síðustu daga hefur hún notið lífsins í Lundúnum að því er virðist ef maður skoðar story á Instagram-síðu hennar. Þar sést hún sitja í stætisvagni með ungum, ljóshærðum pilti sem óvænt smellir á hana kossi á kinn, sem kætir söngkonuna mikið. Hvort um sé að ræða nýjan ástmann eða einungis vin, kemur ekki fram en myndskeiðið skemmtilega má sjá hér að neðan: