Brynjar Níelsson lætur eldræður tveggja stjórnmálaandstæðinga sinna fara í taugarnar á sér.
Lögmaðurinn Brynjar Níelsson skrifaði Facebook-færslu í gær þar sem hann agnúast út í tvær ræður sem vakið hafa athygli nýverið. Annars vegar lét hann eldræðu Sigurðar Inga Jóhannsson um innflytjendur í þætti RÚV þar sem rætt var við formenn flokkanna sem bjóða sig fram til Alþingis í komandi kosningum. Hin ræðan sem pirraði Brynjar, sem er frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins, var eldræða séra Davíðs Þórs Jónssonar í Silfrinu á dögunum, sem sló heldur betur í gegn, enda má segja að hann hafi rassskellt Sjálfstæðismenn í tali sínu um heilbrigðiskerfið og vanhæfni sem hann sagði Sjálfstæðismenn ekki vita hvað er. Færsla Brynjars byrjar á eftirfarandi hátt:
„Orðið „eldræða“ virðist hafa fengið alveg nýja merkingu í fjölmiðlum. Tvær „eldræður“ voru í fréttum í vikunni, annars vegar eldræða formanns Framsóknarflokksins um útlendingamál á RÚV og síðan eldræða séra Davíðs í Silfrinu um fólk sem stæði höllum fæti.
Fullyrða má að aldrei fyrr hafa verið haldin eldræða með því að lesa úr síma í sjónvarpssal texta eftir annan, sem þar að auki þekkti greinilega lítið sem ekkert til málaflokksins og grautaði óskyldum hlutum saman. Sjálfsagt er hægt að lesa texta með tilþrifum en innihaldið þarf að vera þokkalegt svo hægt sé að tala um eldræðu.“
Í seinni hluta færslunnar líkir Brynjar séra Davíð Þór við Maó Tse-Tung, fyrrverandi formann Alþýðuveldisins Kína og aðra kommúnista, og segir hann enga umhyggju hafa fyrir fátækum og virðist þannig gleyma að Davíð Þór er prestur.