Söngkonan Laufey heldur frægðarför sinni áfram.
Óhætt er að segja að íslenska söngkonan Laufey hafi slegið í gegn en hún er um þessar mundir einn vinsælasti tónlistarmaður djassheimsins og hefur meðal annars komið fram í spjallþættinum Jimmy Kimmel Live!
Í gær var birt viðtal söngkonuna sem tónlistarblaðamaðurinn Nardwuar tók. Nardwuar er einn virtasti tónlistarblaðamaður heims og þekktur fyrir ótrúlega nákvæma rannsóknarvinnu. Honum tekst reglulega að gera viðmælendur sína kjaftstopp með þekkingu sinni á þeim og hafa sumir tónlistarmenn sakað hann að vinna fyrir F.B.I. Í viðtalinu við Laufeyju ræðir Nardwuar meðal annars við hana um gamla grunnskóla hennar og Njarðvík.