Hinn ástsæli uppistandari og leikari Richard Belzer er látinn, 78 ára að aldri.
Belzer byrjaði ferilinn sem kjaftfor uppistandari áður en hann sló í gegn sem hinn kaldhæðni en trausti rannsóknarlögreglumaðurinn John Munch í Homicide: Life on the Streets og Law & Order: Special Victims Unit.
Leikarinn lést snemma í gærmorgun, á heimili sínu í Bozouls í Suð-vestur Frakklandi, samkvæmt góðvini hans, sem vill ekki láta nafn síns getið. „Hann glímdi við ýmsa heilsukvilla og síðustu orð hans voru „Farðu í fúlan pitt, asnakjálki! (e. Fuck you, motherfucker)“,“ sagði vinur hans við The Hollywood Reporter.
Fyrsta hlutverkið sem hann fékk var í hinni drepfyndnu The Groove Tube árið 1974 en hann hitaði einnig upp áhorfendur fyrstu ár Saturday Night Live þáttanna. Þá er það einnig þekkt er Hulk svæfði Belzer í sjónvarpi.