Lenny Kravitz fækkar fötum í nýjasta tónlistarmynbandi sínu.
Hinn 59 ára gamli rokkhundur, Lenny Kravitz, sýnir sínu bestu hliðar í myndbandi við glænýtt lag hans, TK421 en þar sýnir hann stæltan líkamann.
Lenny sést kviknakinn í myndbandinu, þar sem hann teygir hendur sínar bakvið höfuð sitt með styttu fyrir hið allra heilagasta. Í annarri nektarsenu hylur hann djásnið með fingrum sínum en er ansi nálægt því að gefa áhorfendum sýnishorn.
En Lenny er ekki bara nakinn í myndbandinu en hann sést þar einnig klæddur í gegnsærri skyrtu og í brúnum snákaskinnsbuxum þar sem hann skakar mjöðmunum á gylltum stóli sem er í laginu eins og fótur en topppartur stólsins gægist á milli lappa hans. Mjög kynþokkafullt.
Í öðrum senum sést Grammy-verðlaunahafinn stilla sér upp ber að ofan í baðkari, hnykklandi vöðvana með gyllt sólgleraugu, og svo tekur hann karate-stellingu ofan á rúmi.
Hið löðrandi kynþokkafulla myndband má sjá hér fyrir neðan: