Anna Kristjánsdóttir finnur til með karlaliði Luton sem eru við það að falla úr ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.
Í nýjustu dagbókarfærlsu Önnu Kristjánsdóttur, vélstjóra og húmorista af guðs náð, minnist hún á stöðu Luton í úrvalsdeildinni ensku í knattspyrnu. Segist hún finna til með „hetjunum hans Stefáns Pálssonar“ sem komu sér upp í efstu deildina í fyrra en eru við það að falla aftur niður. „Að vísu er ekki öll von úti ennþá, því ef Nottingham Forest tapar stórt gegn Burnley sem er þegar fallið og Luton burstar Fulham með milljón mörkum gegn engu, þá eiga hetjurnar hans smámöguleika á að dvelja áfram í efstu deild,“ segir Anna í færslunni og talar svo í lokin um fimmtu deildina: „Það er löngu útséð með fimmtu deild þar sem hetjurnar okkar í Fótboltasamvinnufélagi Halifaxhrepps munu njóta áframhaldandi veru þar eins og löngum áður.“