Fallegt og mikið endurnýjað parhús stendur við Melbæ 38 í Árbænum. Eignin er í grónu og fjölskylduvænu hverfi þar sem íþróttasvæði Fylkis, Elliðaárdalurinn og Árbæjarlaug er í göngufæri.
Húsið er vel skipulagt, 222,8 fermetrar á tveimur hæðum með fimm svefnherbergjum en þar af er bílskúr 22,8 fermetrar.
Forstofan er opin en þaðan er gengið inn á gestasalerni og forstofuherbergi. Flotuð gólf í hlýjum tón eru á allri neðri hæð að frátalinni sólstofu en þar eru náttúruflísar.
Eldhúsið er í dökkum lit með granít borðplötu og nýlegri innréttingu frá Axis. Þá eru tæki frá Whirpool og fylgja ísskápur og frystiskápur með í kaupunum. Dökkur litur á eldhúsi passar sérstaklega vel með flotuðu gólfinu.
Lind fasteignasala hefur eignina á skrá.
Gott flæði er í húsinu enda vel skipulagt og stofa og borðstofa rúmgóðar. Í sólstofu er gert ráð fyrir arni en þaðan er útgengt í fallegan garð með timburverönd og skjólveggjum. Garðurinn snýr til suðurs.
Á efri hæð hússins er hjónaherbergi, þrjú barnaherbergi, baðherbergi og þvottahús. Í hjónaherberginu er draumur margra, fataherbergi. Þar eru hirslur og laus fataskápur sem fylgir með kaupum. Úr hjónaherbergi er útgengt út á svalir sem snúa til suðurs með frábæru útsýni.
Barnaherbergin eru snyrtileg með parketi á gólfi og fatasskápum í tveimur þeirra. Þá er baðherbergi nýlegt með flotuðu gólfi og stílhreinni innréttingu með ,,hans og hennar‘‘ handlaugum.
Sjón er sögu ríkari þegar kemur að þessari framtíðareign. Áhugasamir geta nálgast allar frekari upplýsingar á vef fasteignasölunnar en eignin verður sýnd þann 13.janúar næstkomandi.