- Auglýsing -
Sérverslunin Betra líf leitar að eiganda bangsa sem fannst í verslun þeirra.
Það er ekki aðeins bangsinn Lóa, sem flaug með þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar, sem fór á flakk á dögunum. Sérverslunin Betra líf birti ljósmynd á Facebook-vegg sinn en hún sýndi fallegan kanínubangsa sem er með bleika snuddu í fanginu. Spurt er í færslunni hvort einhver kannist við hina sætu kanínu.
„Lítil dama varð viðskila við kanínuna sína og snuð þegar hún heimsótti okkur í fyrradag. Kannast einhver við þessa sætu kanínu?“
Mannlíf spyr að því sama, kannast einhver við þessa sætu kanínu?