Afmælisbarn dagsins er söngvarinn skemmtilegi, Guðmundur Magni Ásgeirsson frá Bakkagerði. Er hann 44 ára í dag.
Magni tryllti ungur að árum unglingana fyrir austan er hann söng með hljómsveitinni Shape en flutti svo suður til að fronta hljómsveitina Á móti sól og hefur frægðarsól hans skynið skært síðan. Hann hefur gefið út sólóplötur, sungið í undankeppnum Eurovision og hlaut svo 15 mínútna heimsfrægð er hann tók þátt í Rock Star Supernova keppninni um árið.
Mannlíf hafði samband við Magna og spurði hann hvort og þá hvernig hann ætlaði að halda upp á daginn.
„Er að kenna í mest allan dag og svo fjölskyldustund og HM,“ svaraði Magni.
En hvað er svo framundan hjá afmælisbarninu?
„Spila með Á móti sól og Pöpunum á nýja staðnum á Selfossi á laugardaginn og njóta aðventunnar almennt!“
Mannlíf óskar Magna innilega til hamingju með daginn!