Miley Cyrus birti í dag sjóðheita sundlaugamynd á Instagram.
Ein skærasta stjarna heims í dag, poppprinsessan Miley Cyrus birti ljósmynd á Instagram í dag þar sem hún situr fyrir í sundfötum og háum hælum. Er óhætt að segja að ljósmyndin hefur slegið í gegn en rúmlega 777 þúsund manns hefur líkað við hana.
Færslan er í raun auglýsing en við hana skrifaði Miley: „Ég get keypt handa mér sólarvörn … fáðu þér Endless Summer Vacacion glow,“ en þar vitnar hún óbeint í texta við nýjasta smell hennar, Flowers. Einnig skrifar hún að hún sé byrjuð í samstarfi við Dolce Glow og mælir eindregið með vörum þeirra.
Hér má sjá hina sjóðandi heitu ljósmynd: