- Auglýsing -
Baltasar Kormákur Baltasarsson, leikari og leikstjóri, hefur nú sett einbýlishús sitt við Smáragötu í miðbæ Reykjavíkur á sölu.
Baltasar setur ekkert verð á eignina en biður um tilboð. Fasteignamatið er rúmir 150 milljónir.
Húsið, sem byggt var árið 1931, er hið myndarlegasta en það er 375 fermetrar á stærð og inniheldur eignin 4 svefnherbergi, þrjú baðherbergi, bílskúr og stóran garð. Húsið hefur verið mikið endurnýjað í gegnum árin.
Eins og sjá má á myndunum er húsið með því glæsilegasta á landinu.