Myndskeið sem sýnir aðila nokkurn í ónefndu landi vinna á gröfu með slíkum meistarabrag, hefur heldur betur slegið í gegn á samfélagsmiðlunum.
Aðilinn þykir sýna slíka takta á gröfunni að hann eigi helst skilið listamannalaun. Nákvæmnin og fimin við verkið er á heimsmælikvarða en 18 milljón manns hefur skoðað það á Facebook síðustu þrjá daga og 371 þúsund manns hefur líkað við það. Þá hafa 24 þúsund athugasemdir verið skrifaðar við myndskeiðið. Hér má lesa nokkur þeirra í íslenskri þýðingu:
„Gaurinn hlýtur að vera hjartaskurðlæknir í hjáverkum. Algjör fullkomnun!“
„Eintóm gleði að horfa á. Ég vildi að myndskeiðið væri lengra!“
„Ég myndi láta þennan gaur húðflúra á mér andlitið með þessu tæki“
„Við þurfum þetta á Netflix“
Horfa má á hið stórgóða myndskeið hér.