Nemo kom sá og sigraði í Eurovision í gærkvöldi en hán söng fyrir hönd Sviss. Hán varð fyrir því óláni að brjóta verðlaunagripinn og slasast á þumli í fagnaðarlátunum.
Svissneska lagið, The Code, þótti það besa í úrslitakvöldi Eurovision í Malmö í gærkvöldi. Krúttsprengjan Nemo heillaði Evrópubúa með svakalegri rödd sinni og fallegum boðskap. Í lok flutnings á laginu, eftir að í ljós kom að hán hafði unnið, braut Nemo óvart verðlaunagripinn en eins og sjá má á myndskeiði sem hán birti á Instagram, fékk hán nýjan verðlaunagrip. Í myndbandinu segist Nemo hafa brotið bæði verðlaunagripinn og þumalinn og sýnir plástraðan fingurinn. „Takk fyrir stuðning ykkar og takk fyrir að hlusta á sögu mína og svo margra annarra, ég kann mjög að meta það. Og ekki gleyma að vera góð hvort við annað og ástin sigrar alltaf að lokum,“ sagði Nemo í myndskeiðinu.
Hér má sjá myndskeiðið:
View this post on Instagram