Cristiano Ronaldo, knattspyrnugoðsögn og eiginkona hans Georgina Rodriguez fyrirsæta og dansari, hafa gefið nýfæddri dóttur sinni nafn.
Eins og sagt var frá í fréttum á dögunum áttu hjónin von á tvíburum, dreng og stúlku en drengurinn lifði því miður ekki fæðinguna af. Athygli vakti þegar lið Ronaldo, Manchester United lék við Liverpool á útivelli, daginn eftir sorgarfréttirnar en áhangendur Liverpool stóðu upp og klöppuðu í mínútu til heiðurs syni Ronaldo sem lést. Sagðist Ronaldo aldrei muna gleyma þessu.
En nú er sem sagt komið nafn á hina fallegu dóttur þeirra hjóna. Georgina setti fallega ljósmynd af stúlkunni og skrifaði við hana Bella Esmeralda 💚 180422. Fallegt nafn á fallegt barn.