Stórleikarinn góðkunni, Ólafur Darri Ólafsson ferðaðist með dóttur sinni í síðustu viku og birti skemmtilega ljósmynd af þeim feðginum á Instagram.
Ólafur Darri Ólafsson stórleikari birti fallega ljósmynd af sér með dóttur sinni og hundi sem þau hittu á ferðalagi sem þau voru á í síðustu viku. Bæði eru þau miklir hundavinir og óhætt að segja að ljósmyndin sanni það.
Ólafur Darri stendur annars í ströngu um þessar mundir en hann er að vinna í hvorki meira né minna en fimm leikverkefnum. Af þeim verkefnum eru fjögur þeirra sjónvarpsþættir, en í einum þeirra leikur hann með goðsögninni Christopher Walken og stórleikurunum Adam Scott, John Turtorro, Patricia Arquette og Gwendoline Christie. Þá leikur hann einnig hlutverk í kvikmyndinni A Winter´s Journey ásamt Jason Isaac og John Malcovich.
Hér fyrir neðan má sjá hinu skemmtilegu ljósmynd sem Ólafur Darri birti en við hana skrifaði hann: „Ég ferðaðist með dóttur minni í síðustu viku, bara við tvö og þessi ljósmynd fangar fullkomlega hvernig ferðin var. Hundurinn er yndislegur Irish wolfhound, óþarfi að segja það en við elskum hunda.“