Hljómsveitin VÆB sem tekur þátt í Söngvakeppninni 2025 hefur verið sakað um að stela hluta úr öðru lagi og nota sem eigið lag en um er ræða vinsælt lag frá Ísrael. Sumir telja að vísa eigi hljómsveitinni úr keppni og hafa höfundar ísraelska lagsins haft samband við lögfræðinga vegna málsins.
Í svari frá Rúnari Frey Gíslasyni, verkefnastjóra hjá RÚV, kemur fram að málið sé ennþá í skoðun. „Geri ráð fyrir að við ákveðum hvort og þá hvað við gerum fyrir vikulok. Nákvæmlega núna stendur alls ekki til að vísa þeim úr keppni. Við treystum þeirra orðum um að þeir hafi aldrei heyrt umrætt ísraelskt lag og að lagið þeirra, RÓA, sé samið af þeim. En eins og ég segi, þá erum við að skoða þetta með okkar fólki.“
Um helgina bað Mannlíf lesendur um að segja sína skoðun á málinu og spurði hvort vísa ætti sveitinni úr keppninni en tæplega helmingur lesenda sagði að vísa ætti VÆB úr Söngvakeppninni.
Hægt er að hlusta á lögin hér fyrir neðan: