Eins og í mörgum stórum starfsgreinum veitir klámmyndaiðnaðurinn fólki verðlaun sem er í þeim bransa. Þekktustu verðlaun þess iðnaðar eru án efa AVN verðlaunin eftirsóttu en þau eru stundum kölluð Óskarsverðlaun klámmyndaleikara og þau voru afhent um síðustu helgi í Las Vegas en þau hafa verið veitt síðan árið 1984.
Isiah Maxwell og Vanna Bardot munu seint gleyma deginum en þau unnu aðalverðlaunin á hátíðinni. Maxell var kosinn besta karlkyns klámstjarnan og Bardot vann kvennamegin. Þá vann Emma Rose verðlaun sem besta trans stjarnan.
Af öðrum stórum verðlaunum þá vann Derek Dozer verðlaun sem besti leikstjórinn, Kira Noir vann sem besta leikkonan í aðalhlutverki fyrir Machine Gunner og Tommy Pistol vann verðlaunin sem besti leikarinn í aðalhlutverki fyrir Feed Me. Penny Barber fékk svo verðlaun sem „MILF“-stjarna ársins en þetta er fyrsta skipti sem hún hlýtur AVN verðlaun á ferlinum. Chanel Camryn og Hollywood Cash fengu svo verðlaun sem bestu nýliðar ársins 2024.