Meghan Markle og Prins Harry óskuðu hertogynjunni Kate Middleton(40) til hamingju með daginn á heldur óhefðbundinn hátt á dögunum.
Þá kemur fram í erlendum fjölmiðlum að hjónin hafi ekki heimsótt Kate heldur átt við hana myndsímtal en hélt Kate upp á fertugsafmæli sitt þann 9.janúar síðastliðinn.
Heimildarmaður Us Weekly segir að símtalið hafa verið aðeins milli þeirra þriggja en sögur um vandamál innan konungfjölskyldunnar hafa verið á sveimi um nokkurt skeið.
Styrðleikinn milli fjölskyldumeðlima er sagður eiga rætur sínar að rekja til viðtalsins sem Oprah Winfrey tók við Meghan og Harry á síðasta ári.
Konungsfjölskyldan hefur lengi haldið upp á afmæli fjölskyldumeðlima með pompi og prakt. ,,Þetta árið var dregið úr hátíðahöldum vegna Covid‘‘ er haft eftir sama heimildamanni Us Weekly.