Rithöfundurinn Kamilla Einarsdóttir er þjóðinni þekkt fyrir umbúðalausan húmor. Hún spyr fylgjendur sína á samfélagsmiðlinum X hvaða pikköpplínur væru við hæfi um páskana. Búast má við venju samkvæmt að skemmtanalífið verði með fjörugra móti yfir hátíðina.
„Upprisan hlýtur að vera endalaus innblástur,“ skrifar hún og bætir við:
„Hugsanlega líka hægt að vinna eitthvað með krossfestinguna … fyrir þau okkar sem eru fyrir eitthvað svoleiðis.“
Fylgjendur Kamillu deila hugmyndum sínum:
- „Nelgdu mig“
- *Blikkar gaur á barnum og checkar hann upp og niður* „Hversu langur er föstudagurinn þinn?“
- „Það er óþarfi að negla menn á plúsinn til að ná upprisu. En Föstudagurinn verður þá langur en ekki leiðinlegur.“
Vangaveltur Kamillu virðast þó hafa farið öfugt ofan í aðra og er hún spurð hvort það teljist ekki sem kynþáttahatur að gera grín af kristinni trú. Kamilla svarar:
„Æ bara lélegt grín hjá mér, finnst bara að það eigi að megi gera grín af kristinni trú fram og til baka.“
Hvaða pikköpplínum mælið þið með um páskana?
Upprisan hlýtur að vera endalaus innblástur.
Hugsanlega líka hægt að vinna eitthvað með krossfestinguna…fyrir þau okkar sem eru fyrir eitthvað svoleiðis— Kamilla Einarsdóttir (@Kamillae) March 24, 2024