Vladimír Pútín, Rússlandsforseti, er sagður eiga von á barni með kærustu sinni, Alinu Kabaevu. Breska fréttaritið, The sun, greindi frá því að Alina eigi von á barni en talið er að Pútín eigi þegar í hið minnsta tvo syni með Alinu.
Samkvæmt heimildum blaðsins er Pútín sagður hafa dregið sig út úr undirbúningi fyrir veisluhöld í Moskvu þegar honum bárust tíðindin. Samband þeirra Alinu hefur aldrei verið gert opinbert en hafa þau verið orðuð hvert við annað í rúman áratug. Alina er 38 ára gömul, fyrrverandi ólympíufimleikakona en Pútín verður sjötugur á árinu. Alina er sögð halda til í Sviss en á hún að hafa dvalið þar undanfarna mánuði ásamt börnum sínum.