- Auglýsing -
Leikarinn Charlie Sheen hefur átt betri jól en ráðist vera á leikarann fræga á heimili hans í Los Angeles á miðvikudaginn.
Lögreglan segir að nágranni leikarans hafi bankað upp á hjá honum, ruðst inn til hans þegar hann opnaði fyrir honum og hafist handa við að kyrkja Sheen. Nágranninn sem er 47 ára gömul kona hefur átt í nágrannadeilum við Sheen um nokkurt skeið og hafði daginn á undan hent rusli fyrir fram útidyrahurð hans. Eftir að hafa tekið Wall Street-stjörnuna hálstaki, hélt hún rakleiðis heim.
Konan var í kjölfarið handtekin og kærð fyrir innbrot og líkamsárás.