Gamanleikarinn og uppistandarinn Ricky Gervais birti í gær myndskeið af erfiðasta atriði sem hann hefur leikið í, á Twitter-reikningi sínum.
Hinn drepfyndni grínisti Ricky Gervais er margt til lista lagt en hann leikur ekki aðeins fantavel heldur hefur hann skrifað handrit að fjölmörgum þáttaseríum sem slegið hafa í gegn sem og kvikmyndir. Ber helst að nefna The Office (upprunalega útgáfan), Extras, Life is Short og After Life. Þá er Gervais annálaður dýravinur sem í gegnum árin hefur verið duglegur í baráttu sinni gegn allskyns dýraníð.
Í gær birti hann átakanlegt atriði úr þáttaseríunni Derek sem hann bæði lék titilhlutverkið í og skrifaði handritið að. Skrifar hann við færsluna: „Þetta er sennilega erfiðasta atriði sem ég hef leikið í,“ og ekki af ástæðalausu. Í atriðinu er verið að útskýra fyrir Derek af hverju þurfi að svæfa hundinn hans, sem er nýrnaveikur.
Hægt er að sjá hið átakanlega atriði hér fyrir neðan:
This is probably the hardest scene I’ve ever had to film. #Derek pic.twitter.com/Y6zQbawWSU
— Ricky Gervais (@rickygervais) February 6, 2023