Hin landsfræga útvarpskona og einn vinsælast plötusnúður landsins, Andrea Jónsdóttir, segir að bólusetningar gegn Covid 119 geri mikið gagn, og það þekki hún á eigin skinni.
Andrea, oft kölluð Rokkamma Íslands, sem um áratugaskeið hefur notið mikilla vinsælda fyrir þætti sína um tónlist á Rás 2 og ekki síður sem plötusnúður af betri gerðinni, tjáir sig á samfélagsmiðli undir færslu þar sem aðeins er tekist á um gildi mikilvægi bólusetninga og harðar sóttvarnarreglur: Er Andrea er mjög fylgjandi bólusetningum og sóttvarnaraðgerðum:
„Bólusetningar gera gagn,“ segir Andrea í athugasemd við færsluna og bætir við:
„Get vottað um það,“ því Andrea er „í sóttkví, því ég er með veiruna.“
Hún þakkar bólusetningunni að henni líði ekki verr:
„En ég er bara með nefkvef, sem er að lagast. Þakka Astra zeneganu það.“