Rúrik Gíslason, fyrrum landsliðsmaður í knattspyrnu, fyrirsæta og athafnamaður, birti nýja ljósmynd af sér á sinni geysivinsælu Instagram-síðu.
Á myndinni er hann ber að ofan með handklæði bundið utan um sig miðjan. Þá er hann með ennisband og í sandölum. Ekki er ljósmyndin tekin á Íslandi, því þó að sólin hafi loksins látið sjá sig, að minnsta kosti sunnanlands síðustu daga, er ekki hægt að spígspora um ber að ofan, sama hversu stæltur maður er, án þess að frjósa. Já og svo stendur við ljósmyndina að hann sé á Spáni.
Við myndina skrifar hinn fallegi maður „Ef Tarzan væri hippi“. Þegar þessi frétt er skrifuð hefur myndin verið uppi í fjóra klukkustundir og fengið yfir 11. þúsund „læk“. Það hlýtur að gleðja Rúrik.
Hér er ljósmyndin: