Afmælisbarn dagsins er engin önnur en Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins og ein bjartasta von íslenskra stjórnmála. Eru 31 ár liðin frá fæðingu hennar.
Sanna hefur verið áberandi við að berjast fyrir réttindum fátækra síðan hún var kosin í borgina 2018, þá aðeins 26 ára gömul.
Mannlíf heyrði í henni hljóðið og spurði hvernig hún ætlaði að eyða afmælisdeginum.
„Er að taka því rólega í dag, hitti mömmu, kíkja á kaffihús og skoða föt í second hand búðum,“ svaraði Sanna Magdalena.
Aðspurð hvað sé svo framundan stóð ekki á svari. „Bara halda áfram að heyra í fólkinu í borginni, tala við það um hvað þurfi að laga og hvernig megi gera það.“