OnlyFans-stjarnan Sophie Rain er heldur betur á milli tannanna á fólki síðan hún upplýsti að hún hafi þénað rúmar 43 milljónar dala á undanförnum 12 mánuðum en hennar eina vinna er að birta myndbönd og myndir af sér á miðlinum. Í viðtali við TMZ segir Rain frá því að fólk þurfi ekki að stunda kynlíf til að græða á OnlyFans því að hún sé ennþá hrein mey en slíkt þykir nokkuð sjaldgæft á OnlyFans. Hún segir að hún sé dugleg í sínu starfi og setji inn myndir oft og reglulega. Þá telur hún að það æsi karlmenn upp að þeir viti að hún hafi aldrei stundað kynlíf. Þó hafa sumir á samfélagsmiðlum sakað hana um að falsa tekjur sínar til þess að skapa sér athygli. Í viðtalinu segist hún vera þakklát en hún hafði fram að þessu lifað í fátækt og aðeins unnið láglaunastörf.