Föstudagur 13. september, 2024
2.8 C
Reykjavik

Setti Íslandsmet en undirbýr nú stórtónleika

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Már Gunnarsson fær litla hvíld eftir glæsilegan árangur á Ólympíuleikum fatlaðra í París um daginn en hann ætlar að halda stórtónleika hér heima og erlendis.

Ólympíufarinn og söngvarinn Már Gunnarsson setti á dögunum Íslandsmet í 100 metra baksundi í S11-flokki blindra á Ólympíuleikum fatlaðra í fyrradag en hann ætlar sér ekki að hvíla sig mikið því nú undirbýr hann stórtónleika sem haldnir verða í Salnum í Kópavogi, Hljómahöllinni og í Manchester á  Englandi ásamt The Royal Northern College of Music Session Orchestra.

Royal Northern College of Music Sessplöt Orchestra eru 30 stórkostlegir hljóðfæraleikarar sem margir hverjir spila einnig með BBC Philharmonic, The Hallé, Manchester Camerata, Opera North og/eða Royal Liverpool Philharmonic Orchestra, að því er fram kemur í fréttatilkynningu um tónleikana.

Á tónleikunum mun hann kynna nýja plötu sem heitir „Orchestral me“. Þá ætlar hann að flytja fjöldi skemmtilegra laga í stórum útsetningum í anda Disney. Fjöldi gestasöngvara mun einnig koma fram.

Fyrsta lag plötunnar, The Spirit in Motion, kom út áður en Már hélt utan og var gefið út í tilefni af veru hans á Ólympíuleikunum. 

„Lagið fjallar um allt það góða sem sameinar okkur á Ólympíuleikum, samkennd, vináttu og keppnisskap, en einnig um sársaukann og ómælda vinnuna sem fólk leggur á sig til að skara fram úr,“ segir Már. 

- Auglýsing -

Í fréttatilkynningunni segist Már í gegnum tíðina hafa gert sitt besta til að samtvinna tvær helstu ástríður sínar, það er sund og tónlist: „Þess vegna langaði mig að gera eitthvað sérstakt í aðdraganda Ólympíuleikanna í ár og útkoman varð þetta lag, The Spirit in Motion.“

Myndbandið með laginu er afar hjartnæmt að því er segir í fréttatilkynningunni en Már segist vona að lagið eigi hvetja fólk til dáða: „Ég vona að þetta lag muni hvetja fólk til að vera óhræddur við að fara í ferðalag og taka að sér hvað sem verður, í þeirri trú að allt muni ganga upp og vera þess virði á endanum.“

- Auglýsing -

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -