Skerjafjörður hefur lengi verið eftirsótt hverfi enda gróið og á einum besta stað í bænum. Við Einarsnes 68 stendur einbýli sem nú er komið á sölu en verð hússins er undir fasteignamati sem er orðið sjaldséð á fasteignamarkaðnum í dag. Um er að ræða átta herbergja eign á tveimur hæðum en húsið var byggt árið 1945 og er 283,4 fermetrar. Í húsinu eru tvær fullbúnar íbúðir og því kjörið tækifæri á leigutekjum. Eins og sjá má er gróinn og fallegur garður í kring um húsið Hér hefur verið haldið í retro stílinn sem passar svo sannarlega vel við húsið sjálft Stofa og borðstofa eru samliggjandi – Bjart og fallegt Talsverðar endurbætur voru gerðar á síðasta ári, meðal annars nýtt parket sem sést hér Litagleði í eldhúsi Baðherbergi á efri hæð Eitt af svefnherbergjunum er nýtt sem skrifstofurými, enda nóg pláss! Hér má sjá inn í íbúð á neðri hæðinni en frekari upplýsingar má nálgast hjá fasteignasölunni Procura.