Á eftirsóttum stað í Kársnesinu er komin á sölu sérlega falleg íbúð með stórkostlegu útsýni. Íbúðin er 147,1 fermetrar en fjölbýlishúsið er nýtt, með lyftu og fylgja einnig tvö bílastæði í kjallara. Fasteignasalan Lind er með eignina á skrá. Íbúðin er öll hin glæsilegasta en hér má sjá eldhús og borðstofu. Stærðarinnar eyja í eldhúsi. Hér vantar ekki skápa pláss! Íbúðin er með viðarparketi og hafa jarðlitir orðið fyrir valinu í þessu rými. Virkilega smekklegt. Bjart og fallegt. Hjónaherbergi – Haldið í sömu litatóna Hlýlegt barnaherbergið Hér má sjá baðherbergið en annað gestasalerni er í íbúðinni. Rúsínan í pylsuendanum. Útsýnið. Stórkostlegt! Fyrir þá sem hafa áhuga má nálgast allar frekari upplýsingar á vef fasteignasölunnar.