Við Hofgarða 11 á Seltjarnarnesi stendur tæplega tvö hundruð fermetra glæsilegt einbýlishús sem nú er komið á sölu og er ásett verð 185 milljónir króna. Árið 2010 var húsið talsvert mikið endurnýjað og eru innréttingar stílhreinar og frágangur vandaður.
Bjart og fallegt. Forstofan er flísalögð með nægu skápaplássi.
Gestasalerni inn af forstofu
Stofan er björt og ljósir tónar ríkjandi
Eldhúsið er með hvítum innréttingum. Kvartz borðplötur frá Reinog flísar á gólfi. Innréttingar eru frá Ormsson með AEG tækjum, spanhelluborð og uppþvottavél.
Aðalbaðherbergi hússins er með flísum á gólfi og veggjum, vönduðu baðkari og walk-in sturtu með gleri. Stílhreint.
Garðurinn er með heitum potti og útisturtu. Góðir skjólveggir eru bæði að framan- og aftanverðu og er eflaust algjör lúxus að liggja þarna á sólríkum sumardegi.