Við Dalaþing 24 í Kópavogi stendur glæsilegt 435 fermetra hús sem nú er komið á sölu. Úr húsinu er gullfallegt útsýni en stendur það í nálægð við Elliðavatn og mikla náttúrufegurð.
Eins og sést er húsið afar bjart enda ýmist stórir eða gólfsíðir gluggar.
Stofa og borðstofa eru samliggjandi. Hér vantar ekki plássið!
Hér sést glitta í fallega náttúru út um borðstofuglugga.
Infrarauður saunuklefi er á neðri hæð hússins en það verður að teljast sem lúxus.
Opið rými nýtt fyrir líkamsræktaraðstöðu – Sniðugt, enda nóg pláss.
Það verður ekki annað sagt en að þetta sé stórglæsileg eign. Fyrir áhugasama má nálgast frekari upplýsingar á vef fasteignasölunnar en er það fasteignasalan Lind sem er með húsið á skrá hjá sér.