Viðskiptavini Smáralindar brá heldur betur í brún þegar hann ók á bílaplani verslunarmiðstöðvarinnar.
Tók hann þar eftir karlmanni standa við póstbox Smáralindar. Maðurinn stóð þar, að því er virtist, í mestu makindum og reykti um leið og hann skeit og skeindi sér.
Eins og þeir þekkja sem kunnugir eru staðháttum verslunarmiðstöðvarinnar, þá er hún í almannaleið og hornið sem maðurinn stendur á er við annan aðalaðkomustað Smáralindar.
Virtist maðurinn þó lítið kippa sér upp við að athafna sig með þessum hætti á almannafæri, þar sem allir gátu séð til hans og tekið myndir eða myndband, líkt og þessi bíleigandi.
Orðatiltækið skítur skeður fær alveg nýja merkingu!
Myndbandið flakkar nú á milli fólks í netheimum, hvort það sé sviðsett er ekki vitað.