Björn Birgisson gefur Facebook-vinum sínum ráð ef ske kynni að Morgunblaðið óskaði eftir viðtali.
Samfélagsrýnirinn og fyrrverandi ritstjórinn Björn Birgisson skrifaði færslu í dag þar sem hann skýtur föstum skotum á Morgunblaðið, sem hefur að undanförnu fjallað af áfergju um styrkjamál Flokk fólksins en nú hefur komið í ljós að fleiri flokkar hafi þegið styrki án þess að fara í einu og öllu eftir settum reglum um slíkt, þar á meðal Sjálfstæðisflokkurinn. Ritstjórinn gamli gefur lesendum sínum ráð ef ske kynni að Morgunblaðið hefði samband og bæði um viðtal. Hér fyrir neðan má lesa færsluna:
„Fjölmiðlar sem hiklaust birta falsfréttir ef það hentar þeim, út frá pólitík og hagsmunagæslu, birta að sjálfsögðu líka raunverulegar fréttir og fara rétt með þær – ef það hentar þeim.