Sólveig Anna Jónsdóttir brá á leik á Facebook í dag.
Verkalýðshetjan Sólveig Anna Jónsdóttir kann greinilega að gera grín að sjálfri sér. Í nýrri Facebook-færslu birti hún skopmynd sem birtist í Morgunblaðinu í dag en myndin sýnir Sólveigu Önnu svartklædda stökkva fram með hamar og sigð í höndunum. Framundan er erfiður vetur og ljóst að Sólveig Anna þarf á öllum sínum vopnum að halda. Við færsluna skrifar verkalýðshetjan:
„Mogginn í gær. Við í stjórn Eflingar teljum að þarna sé mögulega komið outfittið fyrir stóru samninganefndina í vetur.“
Skemmst er frá því að segja að hin spaugilega færsla sló rækilega í gegn en á hálftíma var hátt í 100 manns búið að líka við hana.