Sagnfræðingurinn og gáfumennið Stefán Pálsson skrifaði færslu á Facebook þar sem hann talar um svekkelsi sumra vegna taps Íslands gegn Króatíu á HM í hanbolta í ljósi þess að Íslendingur þjálfar Króatana. Rifjar hann upp þegar hann var fenginn til að þjálfa FB í Morfís-ræðukeppninni, þegar hann var sjálfur á lokaárinu hjá MR.
Hefst færslan á eftirfarandi hátt: „Einhverjir voru að svekkja sig á að Dagur Sigurðarson hafi sem þjálfari Króata slegið okkur úr keppni. Ég tengi hins vegar heitt og innilega. Á lokaárinu mínu í MR var ég kominn í smá fýlu út í málfundafélagið (ekkert sem risti neitt djúpt samt) og hugsaði mig því ekki tvisvar um þegar FB hafði samband og bauð mér þjálfaradjobbið í MorfÍs.“
Stefán segir að svo hafi farið að MR og FB drógust saman í fyrstu umferð keppninnar og að stemingin hafi verið „ansi stirð“ á göngum skólans.
Að lokum upplýsir Stefán lesendur sína um að FB hafi tapað en með litlum mun og því hafi aðallega verið um að kenna veikindi Lalla sjúkraliða.
„Við enduðum á að tapa en með miklu minni mun en nokkurn hefði órað fyrir og hefðum mögulega unnið ef Lalli sjúkraliði hefði ekki verið fárveikur og keppt útúrdópaður af öllu því sem læknirinn gat skrifað uppá, drekkt í dassi af Jägermaster. Áfram Dagur!“