Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir kann ráð til að veipa á almannafæri án þess að vera nappaður.
Á dögunum komst Lauren Boebert, þingkona Repúblíkanaflokksins í Bandaríkjunum, í fréttirnar Vestanhafs þegar henni var hent út úr leikhúsi fyrir ósæmilega hegðun. Hafði hún sungið hátt og dansað á söngleiknum Beetlejuice, veipað framan í aðra gesti og káfað á manninum sem var með henni og leyft honum að káfa á sér. Bannað er að veipa innandyra á opinberum stöðum í flestum samfélögum og á það einnig við hér á landi.
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, leik- og sjónvarpskona, brá á leik um helgina er hún birti „kennslumyndband“ þar sem hún sýnir frábæra leið til að veipa á opinberum stað án þess að vera nappaður.