Þriðjudagur 24. desember, 2024
0.8 C
Reykjavik

Stikla fyrir nýja hryllingsmynd Þórðar slær í gegn: „Ég get ekki beðið eftir þessari“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Stikla fyrir The Damned, nýja hryllingsmynd Þórðar Pálssonar, hefur slegið í gegn á nokkrum dögum eftir að hún var sett á Youtube en horft hefur verið á stikluna yfir 500 þúsundum sinnum á hinum ýmsu Youtube rásum. Þá eru nánast allar athugasemdir sem skrifaðar hafa verið um stikluna jákvæðar.

„Ég get ekki beðið eftir þessari,“ skrifar einn í athugasemdakerfi Youtube og „Fjandinn, þessi lítur frábærlega út,“ skrifar annar. Kvikmyndin var frumsýnd í júní á Tribeca kvikmyndahátíðinni en hún er ein af virtustu kvikmyndahátíðum heimsins og hefur fengið góða dóma á þeim kvikmyndahátíðum sem hún hefur verið sýnd. Myndin kemur út 3. janúar 2025 í víðari dreifingu.

Myndin er hryllingsmynd með sálfræðilegu ívafi sem gerist árið 1874 í afskekktu íslensku þorpi og segir frá Evu, sem byrjar að missa sjónar á gildum sínum þegar hún verður fyrir barðinu á grimmilegu samfélagi sínu. Hún var tekin upp á Vestfjörðum og lauk tökum snemma í fyrra. Odessa Young og Joe Cole fara með aðalhlutverk myndarinnar en þekktasti leikari hennar er þó án efa Íslandsvinurinn Rory McCann sem lék Sandor Clegane í 38 þáttum af Game of Thrones.

Þórður er einn af mest spennandi kvikmyndagerðarmönnum Íslands en hann skrifaði og leikstýrði þáttunum The Vahalla Murders sem voru sýndir á Netflix og RÚV við góðar viðtökur og er The Damned fyrsta kvikmyndin hans í fullri lengd. Áður hefur Þórður gert verðlaunastuttmyndina Brothers sem fór sigurför um heiminn.

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -