Svala Björgvinsdóttir birti frábæra ljósmynd af sér með pabba sínum, Björgvini Halldórssyni, á Instagram.
Söngdívan sjálf, Svala Karítas Björgvinsdóttir er dugleg að nýta sér samfélagsmiðlana en þar birtir hún bæði ljósmyndir til að vekja athygli á list sinni, glefsur úr persónulega lífinu og áhrifaríkar færslur um stríðið á Gaza, svo eitthvað sé nefnt.
Nýlega birti hún frábæra ljósmynd af henni og föður hennar, goðsögninni Björgvini Halldórssyni eða Bó Halldórs eins og hann er oft kallaður. Myndin virðist tekin við matarboð en þar sést Bó brosa sínu skærasta í fallegri skyrtu en við hlið hans er Svala í fallega neógulum bol og með hárið bundið upp í snúð. Hátt í 400 manns líkaði við ljósmyndina enda stórskemmtileg. Við færsluna skrifaði Svala: „Bestur í heimi hann pabbi 💞“
Hér má líta myndina augum: