Sölvi Tryggvason fer í ísbað á hverjum degi.
Hlaðvarpsstjórnandinn Sölvi Tryggvason birti myndskeið af sér í story á samfélagsmiðlunum í dag þar sem hann sést baða sig í ísköldum potti en á myndskeiðið að skrifað „Project Icebath every day still going strong“ eða eins og það útleggst á okkar ylhýra tungumáli: „Verkefnið Ísbað á hverjum degi, gengur enn vel.“
Sölvi talar svo við myndavélina og segir ískaldur: „Það er alveg sama hvað maður gerir þetta oft, fyrsta umferðin þá er maður er alltaf áður en maður fer ofan í: „Erum við að fara að gera þetta aftur?“. En, svo er þetta alltaf jafn mikil snilld.“
Hér fyrir neðan má sjá myndskeiðið og svo er bara að drífa sig í kaldan pott!