Áhrifavaldurinn Tanja Ýr Ástþórdóttir og Ryan hafa keypt sér hús í Manchester-borg.
Mbl.is segir frá því að Tanja Ýr Ástþórsdóttir, eigandi Glamista Hair og áhrifavaldur, hafi nýverið keypt hús Í Manchester með kærastanum til tveggja ára, Ryan. Snemma á síðasta ári flutti Tanja Ýr til Manchester, til að koma fyrirtæki sínu, Glamista Hair, almennilega fyrir á alþjóðlegum markaði. Fyrirtækið selur hárlengingar. Tanja Ýr tilkynnti um kaupunum á Instagram. „Loksins, heima er best (e. Finally Home sweet home),“ skrifaði hún og birti nokkrar ljósmyndir. Parið ætlar sér að endurbæta húsið og gera eignina að sinni á næstu mánuðum.
Tanja Ýr er ekki einungis vinsæl samfélagsmiðlastjarna, heldur einnig heillarík viðskiptakona.
View this post on Instagram