Innanhússhönnuðurinn Brooke Gomez(49) fannst látin í íbúð sinni í Upper East Side, New York, meira en viku eftir að hún sást síðast á lífi.
Samkvæm frétt New York Post hafði Brooke verið látin í íbúðinni í nokkra daga en lögreglan komst að andlátinu á sunnudagskvöldið síðasta. Ekkert saknæmt er talið hafa átt sér stað en Brooke var þekktur og virtur innanhússhönnuður. Hún hafði starfað í 18 ár fyrir Gomez Associates, innanhússhönnunarfyrirtækið sem móðir hennar, Mariette Himes Gomez stofnaði, áður en hún stofnaði sitt eigið fyrirtæki, Brooke Gomez Design, árið 2019.Gomez var einnig þekkt fyrir að taka þátt í annarri þáttaröð Bravo TV af „Bethenny Ever After“ árið 2013, þegar hún endurbætti íbúð Bethenny Frankel fyrir fimm milljónir dollara. Dánarorsök liggur enn ekki fyrir.